27júlí

Elsku Sigurður núna er Þorsteinn Logi frændi þinn orðinn eins árs gamall og við vorum með rosalega afmælisveislu fyrir hann í gær. En það vantaði þig ég veit að þú hefðir verið hérna hjá okkur og haft gaman af því að hitta alla. Þorsteinn Logi fékk mikið af pökkum en ekki gjöfina sem ég veit að þú hefðir gefið honum, seinna þegar hann verður stærri þá ætla ég að kaupa þessa gjöf og gefa honum frá þér. Ég veit þú verður ánægður með það. Man svo vel að þú ætlaðir að gefa honum þessa gjöf í skírnargjöf en þú varst talinn af því vegna þess hversu lítill hann var. Lítið mótorhjól fær hann í minningu þinni seinna.

Elsku bróðir ég fór með rósir á leiðið þitt á Laugardaginn ég vona að þér líki það, veit að þú varst ekki mikið fyrir blóm og varst nokkuð á móti því að vera að eyða peningum í eitthvað sem væri svo bara dautt eftir smá tíma. En mér finnst bara svo fallegt að hafa blóm á leiðinu þínu og vona að þú sért sáttur.

Nú styttist í það að mamma og pabbi flytji suður og þá koma þau oftar til þín að leiðinu, ég veit að hugur þeirra er stöðugt hjá þér og þín er sárt saknað.

Elsku bróðir ég bið að heilsa þér hvar sem þú ert.

Ég elska þig að eilífu og þú átt stóran stað í hjarta mínu eins og þú hefur alltaf átt.

kv. Systa
27. júlí 2009 klukkan 10:40
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Engin athugasemd
15nóvember

Blessuđ sé minning ţín elsku bróđir minn

Elsku Sigurður Heiðar þín verður sárt saknað, ég mun syrgja þig þar til við hittumst á ný.

Það var svo gott að fá að sjá þig áðan og fá að kyssa þig og knúsa. Ég vona svo innilega að þú hafir fundið þann frið sem þú leitaðir að.

Elsku bróðir minn ég er búin að búa til minningasíðu um þig, þar ætla ég að minnast þín.

minningumbrodur.bloggar.is
15. nóvember 2008 klukkan 21:05
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
6 athugasemdir
09nóvember

Allt gott ađ frétta

Ekki hægt að segja annað en að hér sé allt í góðum málum. Þorsteinn Logi dafnar vel og er kominn yfir 7 kílóin. Hann er brosandi alla daga og líður bara mjög vel.

Ég hinsvegar er líka dugleg að þyngjast en kílóatalan mín er ekki uppgefin hér. Ég er bara á fullu að sauma mér kjóla og fínheit þessa dagana og er alveg sjúk, þetta er svo gaman.

Við Þorsteinn Logi fórum í Kringuna um daginn og ætlaði ég að leyfa mér að kaupa mér einn bol eða eitthvað álíka, en ég hugsaði allan tíman að ég gæti nú bara keypt mér efni og saumað mér eitthvað eins og mig langaði að hafa það. Enda er það í tísku þessa dagana að vera í heimasaumuðu geri ég ráð fyrir. Ég tala nú ekki um ef ég bý mér til eitthvað logo eða merki, þá get ég sagt að þetta sé Íslensk hönnun og íslensk vara og það er ógó töff.. hehe...

Í dag ætlum við Þorsteinn Logi að fara í afmæli til Bergrúnar Bjarkar, hún er orðin eins árs gömul. Til hamingju með það skvísa.
09. nóvember 2008 klukkan 14:02
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
2 athugasemdir
03nóvember

Mér ţćti gaman ađ vita ???

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

03. nóvember 2008 klukkan 23:11
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
1 athugasemd
30október

KLUKK

Klukk

Lilja Rós Klukkaði mig fyrir lang löngu

4 störf.

Oddskarð
Egilsbúð
Sjallinn
Heimili fyrir einhverfa

4 bíómyndir 

The Shawshank Redemption
The Green Mile
Gosth
Forrest Gump 

 4 staðir sem ég hef búið á
Neskaupstaður
Kópavogur
Fáskrúðsfjörður
Akureyri

4 sjónvarpsþættir
Despó
Grey's
Friends
Klown

4 staðir í fríum

Grikkland
Spánn
Pólland
London

4 netsíður

barnaland.is
juli2008.is
facebook.com
juniform.net
 

Fernt matarkyns
 
Uxahala rille á Einari Ben
Nautalund ala Hinni minn
Humar með hvítlauk
Fiskréttir frá fylgifiskum

4 óskastaðir akkúrat núna

Neskaupstaður
Disney World
Akureyri hjá Öddu minni
Danmörk 
 
4 sem ég klukka 

Anna Margrét
Óli Heiðar
Hildur Inga
Helga Rut

30. október 2008 klukkan 15:00
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
1 athugasemd
30október

Langar út ađ labba

Það er svo rosalega fallegt veður úti og núna langar mig svo út að labba, en nei það er ekki hægt. Ég er ekki að þora að fara út með Þorstein Loga þar sem hann er svo kvefaður litla greyið...

Þannig að ég verð bara inni í dag og held áfram að sauma...

Ef ég myndi halda mig við efnið þá gæti ég verið búin að sauma svona 10 flíkur... hehehe.. við efnið... ég er svo findin .
30. október 2008 klukkan 14:19
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Engin athugasemd
30október

Hún móđir mín..

.. hringdi í mig í gær og sagði mér að pabbi hafi farið með pakka á pósthúsið. Vá hvað ég er spennt, ég veit alveg hvað er í pakkanum en ég er að farast úr spenning hérna.

Kemur í ljós í kvöld hvað er í pakkanum.

og já ég er langt komin með peysukjólinn sem ég er að sauma mér, það er naumast að maður er duglegur þessa dagana.
30. október 2008 klukkan 10:56
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Engin athugasemd
29október

29. október 2008 klukkan 21:49
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Engin athugasemd
29október

Ég lofa ađ núna fara hlutirnir ađ gerast.

Ég vildi bara deila því með ykkur mínir elskulegir vinir að ég er núna heimavinnandi húsmóðir og það getur nú bara verið nokkuð erfitt djobb. Ég er heima nánast alla daga og það sem ég geri er að sópa og skúra gólf, þvo þvott, þurrka hann og ganga svo frá honum þegar ég er búin að þvo og þurrka svona 10 vélar... nú svo skelli ég í brauð eða köku eða baka sérbökuð vínabrauð. Alltaf eitthvað gott með kaffinu. Nú og ef það er ekki til eitthvað gott með kaffinu þá er allavegana til suðusúkkulaði, ég borða eina pötu á dag með morgunkaffinu svo að ég hafi orku allan daginn.

Nú svo má ekki gleyma hundinum, hann þarf að fara út og gera sínar þarfir og þá þarf nú að þrífa upp eftir hann. Svo þarf nú að viðra þetta grey annað slagið en það hefur eitthvað farið forgörðum síðustu daga vegna veðurs og dagana þar á undan vegna verkja í tá.

Svo að sjálfsögðu þarf að sinna prinsinum, hann þarf að drekka á c.a. tveggja tíma fresti og fá nýja og hreina bleyju eftir þörfum, annað slagið þarf maður að skipta um galla á honum þar sem þessi ungi drengur kann sér ekki magamál og drekkur yfir sig nánast undantekningarlaust. Þosteinn Logi litli prins er með það á hreinu að það er best að slefa fyrir allann peninginn og þarf ég að skipta um svona 10 slef smekki á honum á dag.

Núna er staðan þannig á þessu blessaða heimili að allir fataskápar eru að springa úr skipulagsleysi og já það er komin skápalykt í fötin þar sem sum af þessum fötum hafa varla verið hreyfð í að verða eitt stykki ár. Já það er að verða komið ár frá því að ég varð ólétt. Tíminn er nokkuð fljótur að líða. 

Núna píppar ofninn og banana-brauðið er á að vera klárt. Þar sem ég er orðin húsmóðir þá ákvað ég að vera dálítið hagsýn, já eða reyna það. Ég átti hérna 5 vel þroskahefta banana og ákvað að búa til úr þeim bananabrauð í stað þess að henda þeim. Svo er bara að vona að einhver komi og heimsæki mig á morgun og þá hef ég þetta líka fína brauð uppá að bjóða. Þetta er nú ekki flókið mál og svona til gamans þá ætla ég að henda inn þessari uppskrift hérna: 

BANANA-BRAUÐ
2x vel þroskaheftir bananar
250 gr hveiti 
150 gr sykur
1 tsk salt
1 tsk lyftiduft (matarsódi)

Bananarnir stappaðir saman og svo þurrefnum hrært úti, passa að hræra ekki lengi því þá verður brauðið seigt. Svo bara Bon appertit Kiss

Já ég ætla mér að vera svo mikil húsmóðir að nú er ég farin að sauma og allt, ég er að sauma mér peysukjól og ætla að verða svaka skvísa í heimasumuðum fötum, en það hlýtur að vera INN svona á
síðustu og verstu.

En þið getið gleymt því að ég sé að fara að taka slátur, það er eitthvað sem ég geri ekki. Það er ekki töff. Hinsvegar á ég öskju með þorskflökum í frysti og fulla frysikistu af mat og við hjónin höfum nú bara verið nokkuð eðlileg í eldamennsku. Frystikistan okkar ber þess þó ekki merki að það sé kreppa í landinu þar sem hún er full af svona 2007 mat. Þá erum við að tala um að þar sé að finna Önd, Lambafillet, Nautalundir, Lynghænu og þessháttar gúrme mat.

Ein af þeim ástæðum fyrir því að ég hef ekki verið mikið á þessu bloggi mínu er að það er svo þunglyndislegt, svart og ekkert líflegt. Já og svo þegar ég ætla að fara að breyta því þá er það bara ekki hægt, veit ekki hvað er að en ég bíð róleg þar til á morgunn, ef það verður ekki komið í lagið þá, þá bara bíðum við einn dag en....

En ljósið í lífinu þessa dagana er hann Logi minn ...
29. október 2008 klukkan 21:47
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Almennt
Engin athugasemd
29október

Og hvađ svo ?

Held að það sé kominn tími á það að það verði bloggað á þessum bæ !

En Ég er að sparka í rassin á mér og mun skrifa eitthvað skemmtilegt hér innan tíðar.. já einmitt.. er að koma mér í gírinn. Það er bara svo erfitt að byrja aftur.

Allt gott að frétta af Loga litla og hann stækkar bara og stækkar þetta yndislega drauma barn.

Jæja í kvöld eða á morgunn mun ég blogga meira. Kiss
29. október 2008 klukkan 17:13
Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Ásta Sćrún Ţorsteinsdóttir
  • Netfang: astadodda@gmail.com
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóđir
  • Hjúskaparstađa: Vandlega Gift

Auglýsing

Klukkan

Myndir héđan og ţađan

Gömlu Bloggin mín

Flokkar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit